Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 26. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi Simons að framlengja við PSG
Xavi Simons
Xavi Simons
Mynd: Getty Images
Xavi Simons, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, er við það að framlengja samning sinn við félagið en þetta kemur fram á vefsíðu Goal.

Simons, sem er 19 ára gamall, var titlaður sem undrabarn fyrir sex árum en þá var hann á mála hjá Barcelona.

14 ára gamall skrifaði hann undir samning við ítalska umboðsmanninn Mino Raiola og tveimur árum síðar fór hann á frjálsri sölu til PSG.

Hann lék níu leiki fyrir aðallið PSG á þessari leiktíð en samningur hans mun renna út í sumar.

Simons vildi fá loforð um meiri spiltíma annars myndi hann ekki framlengja samning sinn.

Goal segir nú að hann sé nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið en það er fagnaðarefni enda er hann talinn með efnilegri leikmönnum heims.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner