Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 26. júní 2022 20:10
Ívan Guðjón Baldursson
Fjögur félög vilja kaupa Colwill frá Chelsea
Mynd: Youtube

Chelsea ætlar að kaupa tvo miðverði í sumar en þarf einnig að taka ákvörðun varðandi Levi Colwill sem gerði góða hluti að láni hjá Huddersfield á síðustu leiktíð.


Colwill er aðeins 19 ára gamall og er þegar byrjaður að spila fyrir U21 landslið Englendinga. Leicester, Crystal Palace, Brighton og Nottingham Forest hafa öll áhuga á að festa kaup á varnarmanninum en Chelsea vill líklegast aðeins lána táninginn frá sér.

Chelsea er í smá basli með að manna varnarlínuna fyrir næstu leiktíð og vill ekki endurtaka mistök úr fortíðinni þegar félagið missti Fikayo Tomori og Marc Guehi frá sér áður en þeir sprungu almennilega út.

Colwill er miðvörður sem getur einnig spilað í vinstri bakverði.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner