Liam Rosenior er tekinn við Derby County tímabundið eftir að Wayne Rooney sagði upp knattspyrnustjórastarfinu fyrir helgi.
Rosenior hefur verið í þjálfarateymi Derby undanfarin þrjú ár og er mikils metinn af leikmönnum liðsins. Curtis Davies, fyrirliði Derby, sagði að í hans huga kæmi enginn annar til greina heldur en Rosenior til að taka við starfinu yfir sumarið.
Fyrsta æfing sumarsins hjá Derby er á mánudaginn þar sem leikmannahópurinn býr sig undir komandi átök í ensku C-deildinni eftir fall í vor.
Rosenior er 37 ára gamall og lék meðal annars fyrir Fulham og Hull City í ensku úrvalsdeildinni.
Liam Rosenior will take charge of first team affairs on an interim basis 🐏#DCFC
— Derby County (@dcfcofficial) June 26, 2022
Athugasemdir