Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. júlí 2021 18:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnautovic að verða liðsfélagi Andra Fannars - Kostar þrjár milljónir
Arnautovic þarna nýbúinn að láta heimskulega hluti út úr sér og David Alaba reynir að lágmarka skaðann.
Arnautovic þarna nýbúinn að láta heimskulega hluti út úr sér og David Alaba reynir að lágmarka skaðann.
Mynd: EPA
Marko Arnautovic, fyrrum leikmaður West Ham, er við það að ganga í raðir Bologna. Þar verður hann liðsfélagi Andra Fannars Baldurssonar.

Bologna mun greiða um þrjár milljónir evra fyrir austurríkismanninn sem hefur verið hjá Shanghai Port (áður Shanghai SIPG) undanfarin ár.

Arnautovic, sem er 32 ára sóknarmaður, á að lenda í Bologna í kvöld.

Hann skoraði 21 mark á tveimur tímabilum með West Ham eftir að hann var keyptur frá Stoke. Sumarið 2019 var hann svo seldur í kínversku deildina.

Arnautovic hefur spilað 91 landsleik fyrir Austurríki og skorað 27 mörk.
Athugasemdir
banner
banner