Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. júlí 2021 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík fær slóvenska landsliðskonu (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur krækt í slóvensku landsliðskonuna Tinu Marolt en hún leikur sem miðjumaður.

„Tina er tæknilega góður miðjumaður með mikla reynslu á háu getustigi," skrifar umboðsmaðurinn Alberto Larrea á Instagram.

Hún er 25 ára gömul og landsliðskona í Slóveníu en síðast spilaði hún í Sviss með FC Lugano. Þar áður var hún hjá Orobica, sem er félag á Ítalíu.

Keflavík er að styrkja hóp sinn í þeirri von að forðast fall úr Pepsi Max-deildinni. Keflavík er núna í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner