26.07.26 - 16:03
Brynjar Ingi Erluson
Undirbýr metkaup hjá næsta vinnuveitanda

Mynd: EPA

Richard Hughes er sagður vera að vinna í því að fá Luis Díaz til Al Hilal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sádi-arabíska félagið Al Hilal er reiðubúið að gera kólumbíska vængmanninn Luis Díaz að dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar, en þetta segir belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri.
Al Hilal keypti Crysencio Summerville frá West Ham á dögunum fyrir um 80 milljónir evra og er honum ætlað að spila á hægri vængnum.
Félagið vill nú styrkja sig vinstra megin og segir Tavolieri að Richard Hughes, yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool, vinni að því að fá Díaz frá Bayern München.
Hughes lætur af störfum hjá Liverpool eftir sumargluggann og tekur þá við sambærilegu starfi hjá Al Hilal. Hughes hefur verið gagnrýndur í kjölfar fréttanna, en Liverpool hefur lítið gert í sumarglugganum á meðan Al Hilal hefur landað Summerville og ætlar að sækja Díaz.
Al Hilal hefur ekki enn hafið viðræður við Bayern. Félagið ætlar fyrst að sannfæra Díaz um að ganga í sínar raðir áður en formlegt tilboð verður lagt fram.
Al Hilal er reiðubúið að greiða allt að 130 milljónir evra fyrir hinn 29 ára gamla Díaz. Sú upphæð myndi gera hann að dýrasta leikmanni í sögu sádi-arabísku deildarinnar.
Díaz var stórkostlegur á sínu fyrsta tímabili með Bayern. Hann skoraði 26 mörk og gaf 23 stoðsendingar þegar liðið varð Þýskalandsmeistari.