Fotbolti.net
26.07.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson

Tvær íslenskar stoðsendingar og endurkomusigur hjá FCK

Júlíus Magnússon lagði upp fyrra mark Elfsborg

Júlíus Magnússon lagði upp fyrra mark Elfsborg

Canon

Mynd: Elfsborg

Danski miðillinn Bold segir stórlið FCK hafa náð að afstýra katastrófu þegar liðið vann 3-2 endurkomusigur á nýliðum Lyngby í 1. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Davíð Helgi Aronsson þreytti frumraun sína með Lyngby eftir að hafa komið til félagsins á láni frá Víkingi á dögunum. Ísak Snær Þorvaldsson var einnig í byrjunarliði gestanna.

FCK komst yfir á 27. mínútu en Lyngby svaraði með tveimur mörkum á aðeins þremur mínútum og fór með 2-1 forystu inn í hálfleikinn.

Gestunum tókst hins vegar ekki að halda fengnum hlut. Birger Meling jafnaði metin og Mohamed Elyounoussi skoraði síðan sigurmarkið þegar hann lyfti boltanum yfir Davíð, og skoraði síðan með laglegu skoti.

William Steindórsson kom inn af bekknum hjá Lyngby en Daníel Freyr Kristjánsson kom ekki við sögu. Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen sátu allan tímann á varamannabekk FCK en Viktor Bjarki Daðason var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Róbert Frosti Þorkelsson átti góðan leik með GAIS sem gerði 1-1 jafntefli við Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni.

Róbert kom boltanum á Robin Thomasson í aðdraganda marksins, þó með viðkomu í varnarmanni, en undir lokin fengu þeir á sig jöfnunarmark og lokatölur því svekkjandi 1-1 jafntefli. GAIS er í 9. sæti með 20 stig.

Júlíus Magnússon lagði upp fyrra mark Elfsborg í 2-1 sigri á Malmö. Hann vann boltann á miðsvæðinu og potaði honum til Arber Zeneli, sem keyrði inn í vítateiginn og skoraði.

Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður hjá Malmö. Það sama gilti um Gabríel Snæ Gunnarsson sem var í leikmannahópi Elfsborg í fyrsta sinn frá því hann gekk til liðs við félagið frá ÍA.

Elfsborg er í 6. sæti með 21 stig en Malmö er í því áttunda með 20 stig.
Róbert Frosti átti sendinguna í marki GAIS

Róbert Frosti átti sendinguna í marki GAIS

Canon

Mynd: GAIS

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.