Það bárust óvænt tíðindi núna fyrir stuttu að landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir væri gengin til liðs við Marseille í Frakklandi.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net heyrði í henni hljóðið í dag.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net heyrði í henni hljóðið í dag.
Hún var ekki búin að líta á símann sinn þegar Tómas Þór og Elvar Geir heyrðu í henni. Hún hafði ekki grun um að Breiðablik væri búið að tilkynna félagaskiptin.
„Ég er ekki búin að skrifa undir ennþá, en ég er að fara út á eftir," sagði Fanndís í spjalli núna áðan.
Hvernig gerðist þetta?
„Umboðsmaðurinn minn lét mig vita af þessu. Gluggarnir eru búnir að loka alls staðar og síðan kom þetta upp í hendurnar og mér finnst þetta virkilega spennandi."
„Ég er ekki búin að segja 100% já, ég á eftir að skrifa undir. Maður veit aldrei hvað gerist," sagði Fanndís létt.
Fanndís hefur áður farið út, en þá fór hún til Noregs. Það fór ekki alveg að óskum. Önnur lið hafa haft samband við hana, en henni finnst þetta vera rétti kosturinn í stöðunni.
„Það hafa önnur lið haft samband. Ég hef bara sagt nei þar sem mig hefur langt í eitthvað sem yrði ævintýri, alla vega eitthvað annað en Noregur. Ég vildi fá eitthvað svona almennilegt til að fara út."
Hún er spennt fyrir því að fara til Frakklands í sólina.
„Sólin er mjög góð vinkona mín," sagði hún, en hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



