Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 26. ágúst 2021 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Correa fylgir Inzaghi til Inter (Staðfest)
Mynd: EPA
Lazio hefur staðfest að Joaquin Correa sé farinn frá félaginu á láni til Inter. Að loknum lánssamningnum þarf Inter svo að greiða Lazio 25 milljónir evra fyrir leikmanninn. Inter greiðir svo Lazio fimm milljónir evra fyrir að fá leikmanninn á láni.

Correa er argentínskur framherji sem ætti að vera löglegur með Inter fyrir leik liðsins gegn Hellas Verona.

Hann er 27 ára gamall og skoraði 30 mörk í 117 leikjum með Lazio á þremur árum hjá félaginu.

Correa kom til Lazio frá Sevilla árið 2018 og kostaði þá um 16 milljónir evra. Hjá Inter hittir hann fyrir Simone Inzaghi sem tók við Inter í sumar. Inzaghi var síðustu fimm ár stjóri Lazio.
Athugasemdir
banner
banner