Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. ágúst 2021 17:53
Ívan Guðjón Baldursson
Lyanco keyptur til að fylla í skarð Vestergaard (Staðfest)
Mynd: EPA
Southampton er búið að staðfesta kaup á miðverðinum Lyanco sem á leiki að baki fyrir yngri landslið Serbíu og Brasilíu.

Southampton borgar rúmlega 6 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem kemur inn í hópinn fyrir Jannik Vestergaard sem var seldur til Leicester.

Lyanco er 24 ára gamall og lék fyrir Sao Paulo í Brasilíu áður en hann gekk í raðir Torino fyrir fjórum árum.

Honum tókst þó aldrei að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu og lék í heildina 40 deildarleiki síðustu tvö tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner