AC Milan hefur tryggt sér Pietro Pellegri á eins árs lánssamningi frá Mónakó.
Pellegri er tvítugur sóknarmaður sem var keyptur til Mónakó fyrir 25 milljónir evra aðeins 16 ára gamall. Hann er næstdýrasti 16 ára leikmaður í sögunni en honum tókst ekki að láta ljós sitt skína í Frakklandi.
Pellegri skoraði 3 mörk í 10 keppnisleikjum með Genoa áður en hann fór til Mónakó þar sem meiðsli settu strik í reikninginn. Í heildina hefur hann aðeins skorað tvisvar sinnum í 23 leikjum hjá Mónakó.
Milan borgar 1 milljón evra fyrir lánssamninginn og er með kaupmöguleika sem hljóðar uppá 6 milljónir í viðbót.
Athugasemdir