Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. ágúst 2021 18:10
Ívan Guðjón Baldursson
Real Sociedad fær Sorloth frá Leipzig (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Sociedad er búið að staðfesta komu norska sóknarmannsins Alexander Sörloth á lánssamningi út tímabilið.

Hinn 25 ára gamli Sörloth er þekktur fyrir að vera sterkur og öflugur í loftinu en hann skoraði aðeins 6 mörk í 37 leikjum með RB Leipzig á síðustu leiktíð.

Hann var keyptur til Leipzig eftir að hafa gert 33 mörk í 49 leikjum að láni hjá Trabzonspor í Tyrklandi. Þýska félagið borgaði rúmlega 20 milljónir evra fyrir hann.

Sörloth hefur gert 11 mörk í 32 landsleikjum með Noregi og reynir fyrir sér í spænska boltanum í fyrsta sinn. Hann hefur áður spilað á Englandi, Hollandi, Belgíu
Athugasemdir
banner
banner
banner