Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. ágúst 2021 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Udinese kaupir Success (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Isaac Success er genginn í raðir Udinese og skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Kaupverðið er óuppgefið. Success gekk í raðir Watford rá Granada sumarið 2016 og greiddi Watford 12,5 milljónir punda fyrir leikmanninn, þá var það metfé.

Success er framherji og skoraði þrjú mörk í 63 deildarleikjum með Watford. Hann er 25 ára gamall og lék á síðustu leiktíð níu leiki með liðinu í Championship deildinni og skoraði eitt mark.

Success á að baki tvo leiki með nígeríska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner