Albert Guðmundsson lagði upp mark fyrir AZ Alkmaar þegar liðið gerði jafntefli við Fortuna Sittard á útivelli í hollensku úrvalsdeildinni.
Fortuna Sittard tók forystuna en Dani de Wit jafnaði fyrir AZ á 23. mínútu. Albert átti stoðsendinguna að því marki.
Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1, en gestirnir í AZ komu sterkir inn í seinni hálfleikinn og tókst að komast í 3-1 þegar 70 mínútur voru liðnar af leiknum.
Heimamenn gáfust ekki upp, þeir minnkuðu muninn á 79. mínútu og jöfnuðu svo metin á 96. mínútu.
Lokatölur 3-3 og er AZ með tvö stig eftir tvo leiki. Albert, sem er nýbakaður faðir, spilaði 68 mínútur í dag.
Athugasemdir