26.09.26 - 13:54
Brynjar Ingi Erluson
Ákveðið að Írland mæti til leiks eftir kosningu á hótelinu

Heimir og Írar munu mæta Ísraelum

Mynd: EPA

Heimir og Írar munu mæta Ísraelum

Mynd: EPA
Írska landsliðið mun mæta til leiks gegn Ísrael í Þjóðadeildinni á morgun eftir að meirihluti leikmanna kaus með því á hóteli liðsins í Debrecen í dag.

TENGT EFNI
Heimir og Írar frestuðu fréttamannafundinum - „Ég er enginn hálfviti“
Í morgun var fréttamannafundi Heimis og eins leikmanns írska landsliðsins frestað þar til eftir æfingu liðsins.
Blaðamenn fengu þau skilaboð með mjög skömmum fyrirvara og biðu síðan fyrir utan hótelið eftir því að liðið færi upp í rútu og á æfingu. Ekkert bólaði hins vegar á leikmönnum næstu klukkutímana en á meðan fór fram atkvæðagreiðsla innan hópsins um hvort spila ætti gegn Ísrael á morgun.
Gavin Bazunu, markvörður liðsins, og nokkrir aðrir leikmenn vildu ekki spila leikinn og því var ákveðið að bera málið undir hópinn.
Meirihluti leikmanna vildi hins vegar spila og hefur David Courell, framkvæmdastjóri írska fótboltasambandsins, staðfest að leikurinn fari fram á morgun.
Leikurinn hefur vakið mikla athygli vegna hernaðaraðgerða Ísraels á Gaza og þeirrar miklu umræðu sem hefur skapast um þátttöku ísraelskra liða í alþjóðlegum keppnum.