Fotbolti.net
26.09.26 - 14:49
Brynjar Ingi Erluson

Einn leikmaður dró sig úr hópnum

Gavin Bazunu neitaði að spila við Ísrael

Gavin Bazunu neitaði að spila við Ísrael

Canon

Mynd: EPA

Gavin Bazunu, markvörður írska landsliðsins, var eini leikmaðurinn sem dró sig úr hópnum fyrir leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni, en Heimir staðfesti það á fréttamannafundi í dag.
Heimir: Pressan er orðin gríðarleg og komin að þolmörkum
TENGT EFNI

Heimir: Pressan er orðin gríðarleg og komin að þolmörkum

Fundað var um stöðuna í dag og þar lét Bazunu vita að hann vildi ekki spila leikinn.

Fleiri leikmenn íhuguðu að fylgja hans fordæmi, enda hefur pressan aukist með hverjum deginum. Að lokum var því ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu meðal leikmanna á hótelinu í dag.

Bazunu var sá eini sem ákvað að draga sig úr hópnum. Nokkrir voru enn óvissir, en meirihlutinn kaus að spila leikinn gegn Ísrael.

Þegar írska liðið hélt á æfingu í dag voru því aðeins tveir markverðir með, Caoimhin Kelleher, aðalmarkvörður landsliðsins, og Max O'Leary.

Bazunu er 24 ára gamall og á mála hjá Bolton í ensku B-deildinni, en hann á 22 A-landsleiki að baki með Írum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.