Fotbolti.net
26.09.26 - 14:28
Brynjar Ingi Erluson

Heimir: Pressan er orðin gríðarleg og komin að þolmörkum

Heimir Hallgrímsson

Heimir Hallgrímsson

Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska landsliðsins, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Debrecen í dag fyrir leik liðsins gegn Ísrael á morgun. Markvörðurinn Gavin Bazunu var eini leikmaðurinn sem ákvað að draga sig úr hópnum.
Heimir og Írar frestuðu fréttamannafundinum - „Ég er enginn hálfviti“
TENGT EFNI

Heimir og Írar frestuðu fréttamannafundinum - „Ég er enginn hálfviti“

Það hefur gengið á ýmsu á Írlandi síðustu mánuði, eða allt frá því að ljóst varð að liðið myndi mæta Ísrael í Þjóðadeildinni.
Mikil mótmæli hafa verið vegna leiksins og töluverð pressa á leikmenn að taka ekki þátt.

Írska fótboltasambandið hélt atkvæðagreiðslu í sumar þar sem ákveðið var að spila leikinn, en leikmennirnir sjálfir kusu einnig um málið á hótelinu í dag. Meirihlutinn taldi réttast að mæta til leiks.
Heimir segir fólk ekki gera sér grein fyrir þeirri pressu og ábyrgð sem hafi verið sett á herðar leikmannanna.

„Ég held að enginn í heiminum geri sér grein fyrir þeirri pressu sem er á þessum leikmönnum,“ sagði Heimir á fréttamannafundinum.

„Þetta snýst um að lágmarka skaðann, bæði persónulega fyrir leikmennina og fyrir írskan fótbolta, en það er engin ein ákvörðun sem mun gleðja alla. Við vitum ekki hvaða afleiðingar það hefði ef við myndum ekki spila leikinn.

„Það eru tveir kostir í stöðunni og þeir eru báðir slæmir. Þetta er staða þar sem þú getur ekki unnið,“
sagði Heimir.

Ísraelskur blaðamaður spurði Heimi síðan hvort hann sæi eftir því að hafa notað orðið þjóðarmorð þegar hann lýsti því sem er að gerast á Gaza-svæðinu. Hann var einnig spurður út í Katar, þar sem hann starfaði um árabil, og þá erlendu verkamenn sem létust við framkvæmdir þar.

„Katar hefur breyst mikið á síðustu árum, en ég ætla ekki að fara út í pólitík. Emírinn, sem er góður maður, hefur breytt mörgu þar og þetta veltur allt á þeim sem tekur ákvarðanir. Ég get ekki talað um fortíðina og allt það.“

„Palestína nýtur gríðarlegs stuðnings á Írlandi og það hafa verið mótmæli gegn því að við spilum þennan leik frá því að ljóst varð að við myndum mæta Ísrael. Pressan er orðin gríðarleg og komin að þolmörkum.“

„Ég notaði sterkt orð, það er alveg ljóst. Slagorðið fyrir þennan leik á fánanum var að spila ekki með þjóðarmorði. Með því að mæta til leiks erum við ekki að samþykkja það sem er að gerast.“

„Þegar leikmaður mætir út á völl á morgun þýðir það ekki að hann sé að samþykkja það sem er að gerast á Gaza. Það er yfirlýsingin. Leikmennirnir upplifa þessa pressu mjög sterkt og sumum líður eins og þeir séu að gera rangt með því að spila vegna þeirrar pressu sem er á þeim heima á Írlandi. Það er ekki góð tilfinning,“
sagði Heimir.

Bazunu sá eini sem dró sig úr hópnum

Markvörðurinn Gavin Bazunu var sá eini sem kaus að draga sig úr hópnum og verður því ekki með gegn Ísrael. Heimir staðfesti þetta á fréttamannafundinum, en allir aðrir leikmenn æfa í dag.

„Það var bara einn leikmaður sem dró sig úr hópnum. Allir hinir æfa í dag. Við vildum auðvitað mæta og ræða við ykkur, en jafnvægið breytist aðeins. Við munum æfa, mæta í leikinn og spila hann,“ sagði Heimir enn fremur.

Leikmenn Írlands munu bera svört sorgarbönd til stuðnings fórnarlömbum á Gaza. Þá verður hagnaður af miðasölu á leiknum gegn Austurríki í þessu landsliðsverkefni látinn renna óskiptur til góðgerðarsamtaka og munu leikmennirnir sjálfir einnig leggja sitt af mörkum.

Leikmennirnir hafa jafnframt óskað eftir því að fara ekki í viðtöl eða sinna öðrum fjölmiðlaverkefnum í þessu landsliðsverkefni.
Gavin Bazunu dró sig úr hópnum

Gavin Bazunu dró sig úr hópnum

Canon

Mynd: EPA

Heimir: Pressan er orðin gríðarleg og komin að þolmörkum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.