26.10.13 - 10:29
Hafliði Breiðfjörð
Alexander Már Þorláksson í Fram (Staðfest)

Alexander Már og Bjarni Guðjónsson þjálfari eftir undirskriftina.

Mynd: Fram

Alexander í leik með ÍA í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram heldur áfram að sækja til sín leikmenn og í morgun staðfesti félagið að framherjinn Alexander Már Þorláksson sé genginn til liðs við félagið frá ÍA.
Alexander Már er 18 ára gamall sonur Þorláks Árnasonar sem gerði kvennalið Stjörnunnar að Íslandsmeisturum í sumar. Tvíburabróðir hans, Indriði Áki, leikur með Val.
Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Framara en hann kom við sögu í þremur leikjum ÍA í Pepsi-deildinni í sumar.
Hann var valinn besti leikmaður 2. flokks ÍA nú í haust þegar hann var enn á öðru ári í þeim flokki.
,,Samningur Fram við Alexander Má er í anda þeirra stefnu að laða unga og efnilega leikmenn til félagsins. Fram fagnar komu Alexanders Más í Safamýrina en félagið bindur miklar vonir við hann í framtíðinni,\" segir í tilkynningu Framara.
Bjarni tilkynnti eftir ráðninguna til Fram í haust að hann ætlaði að fá unga leikmenn til félagsins og hefur verið duglegur við að styrkja liðið því Alexander Már er fjórði ungi leikmaðurinn sem hann fær. Áður höfðu komið Einar Bjarni Ómarsson frá KV, Arnþór Ari Atlason frá Þrótti og Hafsteinn Briem frá Haukum.
Félagið hefur misst fjölda leikmanna, Ólafur Örn Bjarnason er hættur, Almarr Ormarsson fór í KR, Sam Hewson í FH, Kristinn Ingi Halldórsson í Val og erlendu leikmennirnir, Alan Lowing, Jordan Halsman, Jon André Röyrane og Steffen Haugland fá ekki nýjan samning.
23 leikmenn spiliðu með Fram á síðustu leiktíð og auk þessara átta sem voru nefndir voru Steven Lennon og Helgi Sigurðsson þegar farnir á braut auk þess sem óvissa er með framtíð Jóns Gunnars Eysteinsonar og Halldórs Hermanns Jónssonar en sá síðarnfendi er orðaður við Þór á Akureyri. Þá gæti Hólmbert Aron Friðjónsson farið í atvinnumennsku.