Fotbolti.net
26.10.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Gabriel Heinze kominn heim (Staðfest)

Gabriel Ivan Heinze

Gabriel Ivan Heinze

Canon

Mynd: Getty Images

Gabriel Ivan Heinze, fyrrum leikmaður Manchester United og Real Madrid, er nýr þjálfari Newell's Old Boys í Argentínu en þetta var tilkynnt í gær.
Heinze, sem átti glæstan feril sem leikmaður, hefur getið sér ágætis nafn í þjálfun síðustu ár.

Hann þjálfaði síðast Atlanta United í MLS-deildinni í Bandaríkjunum en var látinn fara á síðasta ári.

Heinze hefur einnig þjálfað Argentinos Juniors, Velez og Godoy Cruz en er mættur aftur í argentínsku deildina.

Fyrrum varnarmaðurinn mun þjálfa Newell's Old Boys en það er uppeldisfélag hans í Argentínu.

Heinze hóf meistaraflokksferilinn þar og kláraði síðan ferilinn hjá félaginu og því viðeigandi að hann verði nú þjálfari þess.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.