HK eru fallnir úr Bestu-deild karla en liðið tapaði 7-0 gegn KR fyrr í dag. Birkir Valur Jónsson leikmaður HK mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 7 - 0 HK
„7-0 tap og Vestri sækir ekki stig, verður ekki súrara en það. Það gerir þetta ennþá sárara (úrslitin fyrir vestan)."
Í stöðunni 1-0 fyrir KR fær HK dæmda á sig vítaspyrnu og Þorsteinn Aron er rekinn af velli.
„Ég stóð alveg við hliðina á þessu og hann snertir hann aldrei. Hann tekur einhver skref og fellur svo niður. Þetta algjörlega fer með leikinn. Mjög súrt."
„Það sem fer með okkar tímabil er frammistaðan gegn liðunum í kringum okkur. Sem er mjög dýrt þegar við teljum upp úr pokanum."
Birkir Valur er að verða samningslaus.
„Það kemur í ljós á næstu dögum, maður er bara svekktur núna."
Viðtalið við Birki má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir