Finnur Orri Margeirsson er á leið í FH frá Breiðabliki samkvæmt heimildum Arnars Laufdals Arnarsonar, hann er þáttarstjórnandi Ungstirnanna hér á Fótbolti.net.
Samkvæmt heimildum var tilboð FH í Finn Orra samþykkt í gær og hann er búinn að kveðja leikmannahóp Breiðabliks.
Samkvæmt heimildum var tilboð FH í Finn Orra samþykkt í gær og hann er búinn að kveðja leikmannahóp Breiðabliks.
Þetta er í annað sinn sem Finnur Orri verður tilkynntur sem leikmaður FH, áður kom hann 2014 en var mjög stutt hjá félaginu því hann hélt skömmu síðar til Lilleström í Noregi án þess að spila fyrir Fimleikafélagið.
Finnur Orri er þrítugur og getur bæði spilað sem miðjumaður og einnig leyst stöðu miðvarðar. Hann er uppalinn Bliki en hefur einnig leikið með KR hér á Íslandi.
Hann gekk í raðir Breiðabliks fyrir síðasta tímabil og kom við sögu í átján deildarleikjum.
FH, sem hafnaði í sjötta sæti efstu deildar í fyrra, er með fréttamannafund klukkan 14:00 og verður Finnur kynntur sem leikmaður liðsins þá.
Eftir stutta heimkomu er Finnur Orri að ganga til liðs við FH frá Breiðablik (Staðfest) 🤝👀 pic.twitter.com/d0eVnln1E3
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) January 27, 2022
Athugasemdir