Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur viðurkennt að varnarmaðurinn Nathaniel Phillips sé mögulega á förum áður en félagaskiptaglugginn lokar í byrjun næstu viku.
Hinn 25 ára gamli Phillips hefur aðeins spilað 66 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Hann er aftarlega í goggunarröðinni og fær líklega að fara áður en glugginn lokar ef rétt tilboð berst.
„Þetta veltur á því hvort við fáum góð tilboð," sagði Klopp við fréttamenn í dag.
Phillips fór til Bournemouth í janúar í fyrra og hjálpaði þeim að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Hann hefur einnig farið til Stuttgart í Þýskalandi á láni en það verður fróðlegt að sjá hvað verður um hann.
Athugasemdir