Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. mars 2020 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Reus hjónin gefa hálfa milljón til fyrirtækja
Mynd: Getty Images
Marco Reus og eiginkona hans Scarlett Gartman-Reus hafa hrint af stað nýju átaki í baráttunni gegn kórónaveirunni.

Knattspyrnumenn hafa verið duglegir við að leggja sínu nánasta samfélagi lið í þessari erfiðu baráttu.

Flestir hafa þeir aðstoðað heilbrigðiskerfið með gjöfum á ýmsum tækjum og búnaði en einnig hefur mikið verið um matargjafir.

Reus hjónin fara þó aðra leið því þeirra peningur, hálf milljón evra, fer í að hjálpa litlum fyrirtækjum í Dortmund sem gætu orðið gjaldþrota vegna veirunnar.


Athugasemdir
banner
banner