Eder, fyrrum leikmaður Inter og ítalska landsliðsins, er genginn til liðs við Sao Paulo í Brasilíu en hann kemur til liðsins frá Jiangsu Suning í Kína.
Þessi lágvaxni framherji er 34 ára gamall og hefur spilað í Kína síðustu þrjú árin.
Hann er fæddur í Brasilíu en flutti 19 ára gamall til Ítalíu og samdi við Empoli. Eder spilaði með fjölmörgum liðum á Ítalíu en þar má helsta nefna Sampdoria, Brescia, Cesena og Inter.
Eder skoraði 60 mörk í deildinni áður en hann fór til Kína og frammistaða hans á Ítalíu skilaði honum sæti í ítalska landsliðinu árið 2015. Hann fékk ítalskt vegabréf þar sem langa afi hans var ítalskur.
Hann spilaði 26 leiki og skoraði 6 mörk fyrir Ítalíu á tveimur árum frá 2015-2017.
Nú er hann mættur aftur til heimalandsins þar sem hann mun spila með Sao Paulo í A-deildinni. Eder gerði eins og hálfs árs samning.
Athugasemdir