Fotbolti.net
27.04.19 - 19:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Stefán: Erum tilbúin að borga það gjald

Auglýsing
Óli Stefán, þjálfari KA.

Óli Stefán, þjálfari KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

KA-menn byrja ekki vel í Pepsi Max-deildinni. Niðurstaðan var 3-1 tap gegn ÍA á útivelli í dag.
„Ég er vonsvikinn," sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, eftir tapið. „Sú vinna sem erum í núna að taka um þetta sem við höfum verið að gera í vetur og fara af stað með framtíðarplan hefur gengið vel. Við komum vel stemmdir, en mistökin sem við gerum eru ofboðslega dýr."

„Ég er svekktur með úrslitin en stóran hluta af leiknum er ég ánægður með það sem við erum að gera."

Tveir ungir strákar, Brynjar Ingi Bjarnason og Aron Dagur Birnuson gerðu mistök, en Óli og KA fyrirgefa það.

„Við erum með '99 strák í hjarta varnarinnar sem er að spila sinn fyrsta alvöru leik. Þegar þú ert að taka stráka úr starfinu og setja þá inn þá kostar það mistök. Við í KA erum tilbúin að borga það gjald og stöndum að sjálfsögðu með honum."

Í þriðja markinu var varnarveggurinn í aukaspyrnu frekar furðulegur og skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson beint úr spyrnunni.

„Hann er að stilla upp eftir bestu getu og ég trúi því og treysti að hann hafi gert vel. Ég horfi í undanfarana að því marki."

„Ég stend hérna fyrir hönd KA og segi að þetta eru ungir strákar sem eru að koma inn og gera mistök. Þetta er kostnaðurinn við að taka unga stráka inn og gefa þeim tækifæri. En á endanum fáum við sterkari leikmenn og það er það sem við erum að reyna að gera."

Hallgrímur Jónasson og Alexander Groven fóru meiddir af velli í dag og ræðir Óli Stefán betur um það í spilaranum hér að ofan.
Óli Stefán: Erum tilbúin að borga það gjald
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.