Það er mikill hiti í herbúðum Liverpool eftir jafntefli liðsins gegn West Ham í dag.
Liverpool stimplaði sig svo gott sem úr leik í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn eftir 2-2 jafntefli í Lundúnum en Mohamed Salah hefur tekið allar fyrirsagnirnar eftir leikinn.
Hann byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á þegar rúmar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Þegar hann var að koma inn á hnakkreifst hann við Jurgen Klopp og það hefur dregið dilk á eftir sér.
James Pearch fréttamaður Liverpool hjá The Athletic greindi frá því á X að Salah hafi hafnað því að ræða við fjölmiðlamenn eftir leikinn.
„Það kviknar í ef ég tjái mig í dag," sagði Salah þegar hann gekk framhjá 'mixed zoneinu' á London Stadium.
???? this really isn't good...pic.twitter.com/bC4XDpjZTL
— The Redmen TV (@TheRedmenTV) April 27, 2024