HK er í 2. sæti Lengjudeildarinnar þegar flest lið deildarinnar eru búin með átta leiki. HK hefur leikið leik færra og á því leik til góða á topplið Selfoss.
Fyrir einum og hálfum mánuði síðan hætti Brynjar Björn Gunnarsson hjá HK til þess að taka við Örgryte í Svíþjóð. Síðan hefur liðið unnið tvo bikarleiki og unnið fjóra af fimm deildarleikjum sínum.
Fyrir einum og hálfum mánuði síðan hætti Brynjar Björn Gunnarsson hjá HK til þess að taka við Örgryte í Svíþjóð. Síðan hefur liðið unnið tvo bikarleiki og unnið fjóra af fimm deildarleikjum sínum.
Ómar Ingi Guðmundsson hefur verið skráður aðalþjálfari á skýrslu síðan Brynjar fór og þeir Kári Jónasson, Daði Rafnsson, Sandor Matus og Birkir Örn Arnarsson hafa verið Ómari til aðstoðar.
Fótbolti.net ræddi við formann knattspyrnudeildar HK í dag. Frosti Reyr Rúnarsson er í því hlutverki og var hann spurður út í þjálfaramálin.
„Þjálfaramálin standa frábærlega, ef horft er í stigasöfnun og bikarleiki. Við getum ekki verið annað en mjög sáttir við þjálfaramálin. Við höfum verið að skoða næstu skref og erum að skoða þau. Okkur gengur vel og þess þá heldur gefum við okkur góðan tíma til að taka réttu skrefin í því," sagði Frosti.
Kemur til greina að Ómar verði þjálfari til frambúðar? „Ómar er að standa sig gríðarlega vel og við getum ekki útilokað neitt."
Hefur verið ákveðið að hann verði þjálfari út tímabilið?
„Nei, það er ekki búið að taka neina ákvörðun um það. En við að sjálfsögðu stöndum 100% á bak við hann og teymið sem er í kringum liðið núna. Við erum ánægðir með starf þeirra allra og framlag leikmanna. Það er gríðarlega góður andi í hópnum, þeir eru að spila vel og ná hagstæðum úrslitum. Það væri skrítið ef við vildum kúvenda því eitthvað á þessum tímapunkti," sagði Frosti.
HK tryggði sér í gær sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins með 6-0 sigri á Dalvík/Reyni.
„Heiður að stýra uppeldisklúbbnum"
Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Ómar sjálfan eftir sigur gegn Kórdrengjum í síðustu viku.
„Ég held bara áfram. Það verður bara skoðað það ef eitthvað losnar eða eitthvað kemur í ljós. Ég er búinn að segja við þá að ég er alveg til í að fá inn annan mann með mér ef það finnst einhver laus. En við erum ekkert að stressa okkur á þessu ég, Kári, Sandor og Birkir. Allur hópurinn er bara að vinna saman í þessu núna þannig það verður bara að koma í ljós. Við verðum bara saman í þessu þangað til og fókusum bara á það að ganga vel í leikjum," sagði Ómar.
Ómar hefur metnað til þess að byggja sinn þjálfaraferil og vera aðalþjálfari en segir að stjórnin ráði hvaða leið verði farin.
„Já að sjálfsögðu (hef ég metnað til þess) annars væri ég ekki í þessu. Ég hef metnaðinn fyrir því en ég er samt ekkert að pönkast í þeim. Ég er búinn að vera í þessu í hálft ár þegar ég tek við sem aðstoðarþjálfari Brynjars svo er þetta hálft ár saman þegar hann fer út. Ég er alveg til í að fá meiri reynslu sem aðstoðarþjálfari áður en ég tek við einhverju til langtíma. En það er bara heiður að stýra uppeldisklúbbnum þannig ég er bara ótrúlega stoltur og ánægður og ég ætla bara að halda áfram að leggja mitt að mörkum svo félagið getur farið á þann stað sem það vill vera á."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir