Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 27. júlí 2021 17:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍR fær Hjörvar Daða frá HK (Staðfest)
Hjörvar Daði
Hjörvar Daði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur fengið markvörðinn Hjörvar Daða Arnarsson á láni frá HK út tímabilið.

ÍR var með Svein Óla Guðnason á láni frá Þrótti fyrri hluta tímabilsins en hann var kallaður til baka í Þrótt fyrr í þessum mánuði.

Aron Óskar Þorleifsson hefur varið mark ÍR í 2. deildinni í síðustu tveimur leikjum. Enginn varmarkvörður hefur verið á skýrslu og fróðlegt að sjá hvort Aron eða Hjörvar byrja næsta leik ÍR.

Hjörvar Daði er tvítugur markvörður sem spilaði síðast leik með 2. flokki HK árið 2019. Hann var á bekknum sem varmarkvörður meistaraflokks HK í flestum leikjum liðsins á síðasta tímabili en hefur ekki verið í hóp í sumar.

Arnar Hallsson, þjálfari ÍR, gæti þekkt til Hjörvars þar sem hann starfaði sem yngri flokka þjálfari áður en hann tók við Aftureldingu fyrir tímabilið 2018.

Næsti leikur ÍR er gegn Þrótti Vogum á útivelli á morgun.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner