Miðvörðurinn Toby Alderweireld hefur yfirgefið Tottenham og er genginn í raðir Al-Duhail í Katar.
Samkvæmt Telegraph þá er kaupverðið á leikmanninum 13 milljónir punda.
Alderweireld er 32 ára gamall og hefur spilað með Tottenham frá 2015. Þar áður var hann hjá Atletico Madrid á Spáni. Hann spilaði 35 leiki í öllum keppnum með Spurs á síðustu leiktíð.
Tottenham hefur gefið það út á heimasíðu sinni að Alderweireld sé á leið til Katar.
„Við óskum Toby alls hins besta í framtíðinni," segir á vefsíðu Tottenham.
Athugasemdir