27.07.21 - 17:15
Elvar Geir Magnússon
Viktor Karl í banni gegn Víkingum

Viktor Karl Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Karl Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Karl Einarsson, miðjumaður Breiðabliks, tekur út leikbann þegar Breiðablik og Víkingur mætast í næstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á þriðjudagskvöld eftir Verslunarmannahelgi.
Aganefnd KSÍ fundaði í dag og dæmdi Viktor í bann þar sem hann hefur safnað fjórum gulum spjöldum.
Víkingar verða án markahæsta leikmanns deildarinnar en Nikolaj Hansen tekur út bann vegna uppsafnaðra áminninga.
Sjá einnig:
Markamaskínan í banni í stórleik

Daníel Hafsteinsson tekur út bann hjá KA þegar liðið leikur gegn Keflavík á þriðjudag.
Guðmundur Þór Júlíusson varnarmaður HK tekur út leikbann þegar Kópavogsliðið leikur gegn FH á miðvikudaginn í næstu viku.
Hlynur Sævar Jónsson og Ísak Snær Þorvaldsson, leikmenn ÍA, verða í leikbanni þegar Skagamenn leika gegn Stjörnunni sama kvöld.
Í Lengjudeildinni verður Guðjón Pétur Lýðsson í ÍBV í banni gegn Aftureldingu og Sigurpáll Melberg Pálsson í Fjölni verður í banni gegn Grindavík á morgun.
Sjáðu úrskurð aganefndar hérna