Watford gekk í dag frá kaupunum á Moussa Sissoko frá Tottenham. Kaupverðið er talið vera um fimm milljónir punda.
Sissoko er nýorðinn 32 ára og hafði verið hjá Tottenham frá árinu 2016. Þar á undan var hann hjá Newcastle en hann er uppalinn hjá Toulouse.
Sissoko er nýorðinn 32 ára og hafði verið hjá Tottenham frá árinu 2016. Þar á undan var hann hjá Newcastle en hann er uppalinn hjá Toulouse.
Sissoko á að baki 70 landsleiki með Frakklandi og var með landsliðinu á EM í sumar.
Hjá Watford hittir Sissoko fyrir Danny Rose en þeir voru liðsfélagar hjá Tottenham.
Watford mætir einmitt Tottenham á sunnudaginn á útivelli.
Bonjour! 📱💬 pic.twitter.com/yGXwFVHA9P
— Watford Football Club (@WatfordFC) August 27, 2021
Athugasemdir