Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. ágúst 2021 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stórkostlegar fréttir - „Gefur félaginu magnaða tólf mánuði"
Ronaldo og Neville
Ronaldo og Neville
Mynd: Getty Images
„Þetta eru stórkostlegar fréttir. Það er nostalgía í þessu, eitthvað sem virkar ekki alltaf í fótbolta, en hugsunin um Ronaldo í Manchester City var kvöl fyrir stuðningsmenn United," sagði Gary Neville á Sky Sports rétt í þessu.

Fyrir rúmum hálftíma var staðfest að Cristiano Ronaldo færi til Manchester United frá Juventus. Ronaldo og Neville voru samherjar hjá United á sínum tíma.

„Ef það er stór leikmaður laus þá verður United að taka þátt. Við vitum að það er möguleiki að Haaland sé fáanlegur næsta sumar. Cavani tekur þetta tímabil og liðið þurfti annan kost í fremstu víglínu."

„Ég veit að þeir eru með Greenwood en ef við skoðum viðskiptin sem Chelsea hafa gert og þau sem Manchester City hefur reynt þá þarf Manchester United að veita samkeppni. Það sem United hefur gert er að bæta við reyndum markaskorara, goðsögn og það gefur félaginu magnaða tólf mánuði," sagði Neville.
Athugasemdir
banner