Sóknarmaðurinn Elín Metta Jensen fékk ekki úr miklu að moða í 2-0 tapinu gegn Svíþjóð í undankeppni EM í dag.
Hún ræddi við RÚV eftir leikinn.
Hún ræddi við RÚV eftir leikinn.
„Það hefur verið meira að gera hjá mér. Við hefðum kannski getað stigið ofar sem lið og skapað okkur meira í þessum leik. Það er alveg rétt," sagði Elín Metta.
„Mér fannst við gefa allt í þennan leik og stundum ganga hlutirnir bara ekki upp í fótbolta. Mér fannst við vera á fullu í 90 mínútur og ég hrósa liðinu fyrir það."
„Þær voru kannski búnar að leikgreina okkur eitthvað betur. Þær voru ákveðnar eins og í fyrri leiknum," sagði Elín Metta, sem skoraði mark Íslands í 1-1 jafntefli við Svíþjóð í fyrri leik liðanna í riðlinum.
Athugasemdir