Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. október 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Byrjar Ronaldo á Old Trafford?
Cristiano Ronaldo gæti mætt aftur í byrjunarlið United
Cristiano Ronaldo gæti mætt aftur í byrjunarlið United
Mynd: EPA
Arsenal spilar við PSV
Arsenal spilar við PSV
Mynd: EPA
Stefán Teitur mætir West Ham í Lundúnum
Stefán Teitur mætir West Ham í Lundúnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spilað er í 5. umferð í Evrópudeildinni og Sambandsdeild Evrópu í dag en Manchester United fær Sheriff í heimsókn á Old Trafford á meðan Arsenal heimsækir PSV í Eindhoven.

Arsenal er búið að tryggja sér efsta sæti A-riðils Evrópudeildarinnar en liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum. Liðið spilar við PSV klukkan 16:45.

Alfons Sampsted og hans menn í Bodö/Glimt eiga enn möguleika á að komast áfram en til þess þarf liðið að ná í góð úrslit gegn Zürich. Bodö er með 4 stig í 3. sæti, þremur stigum á eftir PSV.

Manchester United getur tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni er liðið fær Sheriff í heimsókn á Old Trafford í E-riðli. Cristiano Ronaldo mætir aftur í hópinn eftir að hafa tekið út agabann. Byrjar hann í kvöld?

Í F-riðli verður Elías Rafn Ólafsson í hópnum hjá Midtjylland sem mætir Lazio á Ítalíu. Midtjylland fer áfram með sigri á Lazio.

Milos Milojevic og lærisveinar hans í Rauðu stjörnunni spila þá við Trabzonspor í H-riðli. Rauða stjarnan þarf sigur en liðið er með 3 stig í neðsta sæti riðilsins.

Í Sambandsdeildinni fara Stefán Teitur Þórðarson og hans menn í Silkeborg í heimsókn til Lundúna og spila þar við West Ham í B-riðlinum. Silkeborg er í 2. sæti riðilsins með 6 stig.

Leikir dagsins:

A-riðill
16:45 Zurich - Bodo-Glimt
16:45 PSV - Arsenal

B-riðill
16:45 AEK Larnaca - Dynamo K.
16:45 Fenerbahce - Rennes

C-riðill
16:45 Ludogorets - Betis
19:00 HJK Helsinki - Roma

D-riðill
16:45 Malmo FF - St. Gilloise
16:45 Union Berlin - Braga

E-riðill
19:00 Man Utd - Sheriff
19:00 Omonia - Real Sociedad

F-riðill
16:45 Lazio - Midtjylland
19:00 Sturm - Feyenoord

G-riðill
19:00 Freiburg - Olympiakos
19:00 Nantes - Qarabag

H-riðill
19:00 Rauða stjarnan - Trabzonspor
19:00 Ferencvaros - Mónakó

Sambandsdeildin

A-riðill
16:45 Fiorentina - Istanbul Basaksehir
19:00 Hearts - Rigas FS

B-riðill
16:45 Anderlecht - Steaua
19:00 West Ham - Silkeborg

C-riðill
16:45 Villarreal - Hapoel Beer Sheva
16:45 Austria V - Lech

D-riðill
16:45 Slovacko - Köln
16:45 Nice - Partizan

E-riðill
16:45 Vaduz - AZ
19:00 Dnipro - Apollon Limassol

F-riðill
19:00 Molde - Djurgarden
19:00 Shamrock - Gent

G-riðill
19:00 Ballkani - Slavia Prag
19:00 Demir Grup Sivasspor - Cluj

H-riðill
19:00 Basel - Zalgiris
19:00 Slovan - Pyunik
Athugasemdir
banner
banner
banner