Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 27. október 2022 11:46
Elvar Geir Magnússon
Líklegt byrjunarlið Man Utd - Byrjar Ronaldo?
Mynd: EPA
Manchester United tekur á móti Sheriff í Evrópudeildinni í kvöld.

United vann 2-0 gegn Sheriff í fyrri viðureign liðanna sem fram fór í september. United er í öðru sæti riðilsins, þremur stigum á eftir Real Sociedad sem hefur unnið alla fjóra leiki sína. United er öruggt með að minnsta kosti annað sæti riðilsins með stigi á fimmtudag. Annað sætið gefur umspilssæti.

Cristiano Ronaldo er kominn úr skammarkróknum og er í leikmannahópnum fyrir kvöldið. Mirror hefur sett saman líklegt byrjunarlið og er með Ronaldo í því.

Raphael Varane verður ekki meira með fram að HM og er búist við því að Victor Lindelöf spili við hlið Lisandro Martínez í kvöld.

Mirror spáir því að Casemiro verði hvíldur og hinn frægi dúett Fred og McTominay verði á miðjunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner