Takumi Minamino, leikmaður Liverpool, var ekki ánægður með frammistöðu sína í síðari hálfleiknum gegn Shrewsbury í bikarnum. Liverpool leiddi leikinn með tveimur mörkum en heimamenn komu til baka í síðari hálfleiknum og tryggðu sér leik á Anfield.
Hinn 25 ára gamli Minamino var í byrjunarliðinu hjá Liverpool í leiknum en hann var ekki sáttur með síðari hálfleikinn.
Hinn 25 ára gamli Minamino var í byrjunarliðinu hjá Liverpool í leiknum en hann var ekki sáttur með síðari hálfleikinn.
„Ég verð að bæta mína taktísku getu og sýna fjölhæfni mína. Ég byrjaði inn á í stöðu sem ég er vanur, þar sem ég gat fengið boltann í hættulegum svæðum. En í síðari hálfleiknum komst ég ekki í takt við leikinn. Ég verð að vera ágengari," sagði Minamino.
Þetta var þriðji leikur Minamino fyrir félagið. Næsti leikur liðsins er gegn West Ham á miðvikudaginn í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir