Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 28. janúar 2022 16:24
Elvar Geir Magnússon
Heimild: KA 
KA fær belgískan vinstri bakvörð (Staðfest)
Bryan Van Den Bogaert er kominn í KA.
Bryan Van Den Bogaert er kominn í KA.
Mynd: KA
Belgíski vinstri bakvörðurinn Bryan Van Den Bogaert er genginn til liðs við KA og leikur með liðinu á komandi sumri.

Bogaert er þrítugur vinstri bakvörður og kemur frá Belgíu en hann gengur til liðs við KA frá RWD Molenbeek sem leikur í næstefstu deild í Belgíu.

Bogaert hefur að mestu leikið í Belgíu þar sem hann hefur spilað með KVC Westerlo, Royal Antwerp, KSK Heist, Royal Cappellen og loks KVC Westerlo en auk þess lék hann um tíma á Englandi með Crawley Town, Whitehawk og Ebbsfleet.

„Við bjóðum Bogaert velkominn í KA og bíðum spennt eftir að sjá hann í gulu og bláu treyjunni. Það er spennandi sumar framundan þar sem KA liðið stefnir á að byggja enn frekar á öflugum árangri undanfarin ár en liðið náði sínum næstbesta árangri í sögunni á síðasta tímabili er liðið endaði í 4. sæti efstu deildar," segir í tilkynningu KA.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner