Þröstur Mikael Jónasson hefur samið við Dalvík/Reyni en hann kemur frá Grindavík. Hann semur til tveggja ára.
Hann er uppalinn Dalvíkingur en hann hafði leikið með Dalvík/Reyni allan sinn feril áður en hann gekk til liðs við Grindavík fyrir síðustu leiktíð.
Hann stoppaði hinsvegar stutt við hjá Grindavík þar sem hann fór aftur á láni til Dalvíkur seinni hluta tímabilsins.
Þröstur er 22 ára gamall en hann hefur leikið 132 leiki og skorað 14 mörk á ferlinum.
Dalvík/Reynir spilar í 3. deild í sumar.
Athugasemdir