Ívar Breki Helgason verður leikmaður Vestra næstu tvö árin eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið í dag.
Ívar Breki er 20 ára gamall og spilaði fjóra leiki fyrir Vestra síðasta sumar. Hann hefur undanfarin ár verið á láni hjá Herði, smærra félaginu á Ísafirði, og verið mikilvægur hlekkur þar í 4. deildinni.
„Ívar er klárlega hluti af framtíð Vestra og því mikið fagnaðarefni að hann skuli framlengja samning sinn," segir meðal annars í tilkynningu frá Vestra.
Vestri endaði í tíunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra með 28 stig úr 22 leikjum.
Athugasemdir