Heimild: KSÍ
UEFA hefur staðfest að KSÍ og Keflavík hljóta saman 25,000 evru styrk úr sérstökum flóttamanna- og hælisleitendasjóð evrópska fótboltasambandsins.
Þennan styrk hljóta þau fyrir fótboltatengd verkefni sem tengjast flóttamönnum og hælisleitendum. Alls sóttu 29 félagslið vítt og breytt um Evrópu um þennan styrk.
Keflavík hlýtur þennan styrk fyrir að hafa boðið börnum hælisleitenda og flóttamanna að æfa tvisvar til þrisvar í viku endurgjaldslaust. Markmið verkefnisins er að styðja við samfélagslega aðlögun flóttamanna og hælisleitenda, enda er mikill fjöldi hælisleitenda og flóttamanna í Keflavík og hefur oft á tíðum reynst erfitt að fá börn af erlendum uppruna til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi.
„Íþróttir, þar með talinn fótbolti, eru kjörinn vettvangur til að tengja fólk með ólíka bakgrunna við hvort annað, íþróttina sjálfa og aðra iðkendur. Afraksturinn er sterkara íþróttastarf, betri líkamleg og andleg líðan þátttakenda og betri aðlögun hælisleitenda og flóttamanna í þeirra nánasta umhverfi," segir meðal annars í tilkynningu frá KSÍ.
Keflavík mun halda þessu starfi áfram og efla það enn frekar eftir staðfestingu á styrkinum frá UEFA, sem nemur rúmlega 3,5 milljónum króna.
„Líkt og kemur fram í opinberri stefnu KSÍ um samfélagsleg verkefni 2023–2026, þá telur knattspyrnuhreyfingin um 10% íslensku þjóðarinnar. Knattspyrnusamband Íslands lítur því á það sem skyldu sína að nýta þann kraft sem býr í knattspyrnufjölskyldunni til að vera virkur þátttakandi í samfélagslegum verkefnum sem gera raunverulegt og áþreifanlegt gagn. Verkefni sem þessi skipta svo sannarlega sköpum fyrir samfélagið, og erum við afar stolt af því að geta tekið þátt í verkefnum af þessu tagi."
Athugasemdir