Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. mars 2021 07:00
Aksentije Milisic
FH fær varnarmann (Staðfest)
Mynd: FH
FH er að styrkja sig fyrir átökin í Lengjudeild kvenna en liðið hefur fengið til sín varnarmann frá Bandaríkjunum.

Tarvia Natalia Phillip hefur skrifað undir samning við félagið en hún er varnarmaður sem kemur frá St. Kitts og Nevis.

FH féll úr Pepsi Max Deild kvenna á síðasta tímabili og mun því spila í Lengjudeildinni á komandi sumri.

„Tarvia Natalia Phillip hefur skrifað undir skrifað undir samning við knattspyrnudeild FH og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar. Hún er öflugur varnarmaður og kemur frá St. Kitts og Nevis en við FH-ingar munum vel eftir löndu hennar Phoenetia Browne sem spilaði með okkur seinni hluta síðasta sumars og vakti mikla athygli í Pepsí Max deildinni. Tarvia Natalia hefur eins og Pho spilað fjölda leikja með landsliðið St. Kitts og Nevis við góðan orðstír. Við FH-ingar væntum mikils af Tarvia Natalia og hlökkum til að sjá hana í FH búningnum næsta sumar. Velkomin í FH," segir á Facebook síðu FH.
Athugasemdir
banner
banner
banner