Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. mars 2021 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þorleifur gerði þrennu fyrir Duke í háskólaboltanum
Mynd: Duke
Sóknarmaðurinn Þorleifur Úlfarsson er að gera flotta hluti með Duke háskólanum í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en það er mjög virtur háskóli þar í landi.

Þorleifur gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Duke í 3-1 sigri gegn Virginíuháskóla í dag.

Þorleifur er tvítugur framherji sem hefur spilað fyrir meistaraflokk Augnabliks og verið lykilmaður þar.

Í fyrra spilaði hann með Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni á láni frá Breiðablik. Hann skoraði eitt mark í fimm leikjum með Ólsurum í næst efstu deild.

Hann er samningsbundinn Breiðablik og það verður fróðlegt að sjá hvort hann spili í sumar.


Athugasemdir
banner
banner