Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 28. apríl 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Magni fær framherja sem er yfir tveir metrar (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni Grenivík hefur fengið framherjann Idelino Goes Colubali í sínar raðir fyrir 2. deildina í sumar.

Idelino er 27 ára gamall en hann er 204 cm á hæð og verður því væntanlega hávaxnasti leikmaðurinn í deildarkeppninni á Íslandi í ár.

Idelino, sem er frá Gíneu-Bissau spilaði síðast með Teuta Durrës í úrvalsdeildinni í Albaníu á síðasta tímabili.

Idelino hefur lengst af á ferlinum spilað í C-deildinni í Portúgal en hann lék einnig með Jerv í norsku B-deildinni árið 2017.

Magni mætir Þór í Mjólkurbikarnum á föstudag en liðið mætir síðan KV í fyrstu umferð í 2. deildinni þann 8. maí.


Athugasemdir
banner
banner