Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. apríl 2022 12:34
Elvar Geir Magnússon
32-liða úrslit Mjólkurbikarsins: Blikar fá Valsmenn í heimsókn
Breiðablik mætir Val.
Breiðablik mætir Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Mjólkurbikarinn
Nú í hádeginu var dregið í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ og goðsögnin Bjarni Fel sáu um að draga undir handleiðslu Birkis Sveinssonar mótastjóra KSÍ.

Drátturinn fór af stað með krafti en Stjarnan og KR mætast í Garðabænum.

Stórleikur 32-liða úrslitanna er viðureign Breiðabliks og Vals og ríkjandi bikarmeistarar Víkings heimsækja Hauka í Hafnarfjörðinn. Það verður Reykjanesslagur þegar mætast Keflavík og Njarðvík.

32-liða úrslit Mjólkurbikarsins 2022:
Stjarnan - KR
Sindri - ÍA
Fylkir - ÍBV
Fram - Leiknir
Hvíti Riddarinn - Kórdrengir
Dalvík/Reynir - Þór
Selfoss - Magni
Grindavík - ÍR
Höttur/Huginn - Ægir
KA - Reynir Sandgerði
HK - Grótta
Vestri - Afturelding
Breiðablik - Valur
FH - Kári
Keflavík - Njarðvík
Haukar - Víkingur Reykjavík
Athugasemdir
banner
banner