Ögmundur Kristinsson, markvörður Vals, virðist vera á förum frá Val. Hjörvar Hafliðason sagði að hann Ögmundur hefði farið á fund þar sem honum hefði verið tjáð að krafta hans yrði ekki óskar áfram.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var spurður út í Ögmund eftir leikinn gegn Stjörnunni í gær en Ögmundur var utan hóps annan leikinn í röð.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var spurður út í Ögmund eftir leikinn gegn Stjörnunni í gær en Ögmundur var utan hóps annan leikinn í röð.
Það komu fréttir um Ögmund að hann væri mögulega á förum frá Val, getur þú staðfest það?
„Já, ég get staðfest það. Við erum með þrjá frábæra markmenn og það getur bara einn spilað," sagði Hemmi.
Hafið þið tveir tekið samtal um framtíðina?
„Já, við erum búnir að eiga hörkugott samtal," sagði þjálfarinn.
Slúðrað er um að Ögmundi standi til boða að klára samninginn hjá Val eða semja um starfslok og myndi þá ekki fá allar þær greiðslur sem hann ætti eftir að fá út samninginn greiddar.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa nokkur félög kannað möguleikann á því að fá markvörðinn í sínar raðir.



