Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 18. apríl 2026 00:15
Hafþór Örn Laursen
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Vuk Oskar Dimitrijevic - Fram
Vuk Oskar Dimitrijevic, leikmaður Fram
Vuk Oskar Dimitrijevic, leikmaður Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vuk Oskar var á skotskónum þegar hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Fram á Keflavík í 2. umferð Bestu deildarinnar. Hann er leikmaður umferðarinnar. Fréttaritari náði á honum í stutt spjall eftir leik.

Lestu um leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 3 -  1 Keflavík

„Ég er mjög sáttur, liðið spilaði vel en við eigum einn, tvo gíra í viðbót og mér fannst við hefðum átt að klára leikinn miklu fyrr.''

Vuk var búinn að vera frá lengi vegna meiðsla en er byrjaður aðeins að spila aftur, þó ekki heila leiki.

„Þetta er búið að taka langan tíma og líka búið að vera ógeðslega erfitt og ég vona að ég nái að koma almennilega til baka núna.''

Fram á leik gegn Þór í næstu umferð á Akureyri og vonar Vuk að hann geti haldið áfram að skora.

„Ég vona það, en það sem er mikilvægast er að við vinnum leiki þannig í raun skiptir ekki máli hver skorar og við vonum bara að fá þrjú stigin fyrir norðan.''

Viðtalið má sjá í heild sinni fyrir ofan í spilaranum.

Sterkustu leikmenn:
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Slapp
banner