Kristín Dís: Óþarfa stress, en ekkert panik
Auglýsing


Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net


Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net

„Við fengum klaufalegt mark á okkur snemma leiks. En við sýndum styrk að koma til baka. Leikurinn var svo sem aldrei í hættu,“ sagði Kristín Dís Árnadóttir leikmaður Breiðablik eftir 4-2 sigur liðsins á KR í kvöld, þar sem hún skoraði tvennu.
„Við vorum svolitlir klaufar þarna í lokin, það lá svolítið á okkur. En þrjú stig er fínt“ sagði hún hvernig leikurinn þróaðist í fyrri hálfleik, eftir að Blikar komust 2-1 yfir.
„Það kom smá stress þarna, óþarfa stress, en ekkert panik“ sagði hún um það þegar KR minnkaði muninn í stöðuna 3-2.
„Það kom smá stress þarna, óþarfa stress, en ekkert panik“ sagði hún um það þegar KR minnkaði muninn í stöðuna 3-2.




