Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir að opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar verði laugardagskvöldið 13. júní.
Talað hefur verið um að leikir fyrstu umferðar gætu verið færðir til að þeir verði leiknir þegar fleiri áhorfendur mega mæta. Í samtali við heimasvæði Vals á Instagram segir Börkur að ekki standi til að færa stórleik Vals og KR.

„Við erum ákveðnir í að spila þarna á laugardeginum. Við ætlum ekki að færa leikinn. Við ætlum að halda í þennan sjarma, laugardagskvöld á móti KR," segir Börkur.
Nú er í gildi 200 manna takmörkun á samkomubanni en með því að hólfa vallarsvæðið niður er möguleiki á að koma fleirum fyrir.
„Við munum teikna upp einhverjar sviðsmyndir og vonandi getum við komið 1.200 - 1.400 manns á völlinn."
Valur vann Keflavík í æfingaleik á Hlíðarenda í gær en það var vel mætt á völlinn og stemningin góð.
„Ég hef lengi verið hérna og man ekki eftir æfingaleik sem er eins vel undirbúinn af öllum; af stjórn, stuðningsmönnum, leikmönnum og þjálfurum."
Börkur er spenntur fyrir Pepsi Max-deildinni og segir að óvenjulega mörg lið geri tilkall í að vera í toppbaráttunni í sumar
Athugasemdir