Fotbolti.net
28.05.22 - 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lukaku reynir allt til að komast aftur til Inter

Lukaku reynir allt til að komast aftur til Inter
Canon

Mynd: EPA

Romelu Lukaku leikmaður Chelsea gekk til liðs við félagið frá Inter síðasta sumar en hann náði sér aldrei á strik á ný afstöðnu tímabili.

Hann lék 26 leiki í deildinni og skoraði aðeins 8 mörk en hann var að kljást við meiðsli á tímabilinu.

Samkvæmt fjölmiðlum á Ítalíu er hann óánægður hjá Chelsea og reynir allt til að komast aftur til Inter. Hann er meira segja tilbúinn að lækka launin sín um helming.

Inter vill fá hann á láni í tvö ár með möguleika á að kaupa hann fyrir 50 milljónir evra. Chelsea er ekki talið tilbúið til að lána hann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.