Fotbolti.net
28.06.20 - 19:09
Einar Knudsen

Vignir Snær: Ég á að hafa brotið á manninum

Auglýsing
Vignir Snær:  Ég á að hafa brotið á manninum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
<i>„Þetta var ekki spurning í þreytu, við fengum á okkur þetta sorglega mark á 80. mínútu og þá held ég að trúin og einbeitingin hafi farið,"</i> sagði Vignir Snær Stefánsson fyrirliði Víkings Ólafsvík eftir 0-4 tap gegn Keflavík í lengjudeildinni í dag.
„Þá fer þreytan að skila sínu en ef við hefðum náð inn jöfnunarmarki í staðinn þá hefði þetta breyst á hinn vegin og við náð meiri orku og náð að sigla þessu í lokin."

Keflavík skoraði fyrsta markið í upphafi seinni hálfleiks með vítaspyrnu. Vignir var ekki sáttur við þann dóm.

„Ég á að hafa brotið á manninum en mér fannst ég hafa náð boltanum á undan honum. Dómarinn metur það öðruvísi. Það var sýnilegt í dag að allar tæklingar og allt sem var farið í á fullu var strax flautað á. Ég var ósáttur við það í leiknum. Glórulaust fyrir mér en svona er þetta stundum."

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.